bóka herbergi
Skilmálar vörukaupa
• Hótel ehf. kt. 680311-0990, er seljandi vöru og þjónustu. Virðisaukaskattsnúmer félagsins er 107898.
• Öll verð fyrir gistingu er tilgreind fyrir hvert herbergi yfir nótt (pr. room – pr. night) og innihalda alla opinbera skatta og gjöld. Kaupandi ber engan sendingarkostnað vegna þessara vörukaupa.
• Greiðslukortanúmer eða staðgreiðsla er skilyrt til að tryggja gistingu. Við tökum við reiðufé Visa, Eurocard, Mastercard, Maestro, American Express, JCB and Electron.
• Ef viðskiptavinur afbókar gistingu innan 48 klukkustunda frá áætlaðri komu er skuldfært á greiðslukort eða dregið af innborgun viðskiptavinar gjald sem nemur einni gistinótt. Skilyrði fyrir endurgreiðslu eru að greiðsla hafi átt sér stað og afbókun fari fram amk. 48 klukkustundum fyrir áætlaðan komudag. Hópar sem eru stærri en 10 manns þurfa að afbóka gistingu með 10 daga fyrirvara, öðrum kosti er skuldfært gjald sem nemur einni gistinótt á hvern gest.
• Öll herbergi og salarkynni eru reyklaus.
• Gestir fá herbergi sín afhent kl. 14:00 á komudegi og skulu hafa yfirgefið þau kl. 12:00 á brottfarardegi.
• Ekkert aukagjald er tekið fyrir börn undir 6 ára aldri þegar þau deila rúmi með foreldurum. Athugið að börn sem eru 12 ára eða eldri eru skilgreind sem fullorðinn einstakingur við gistingu. Vinsamlegast munið eftir að tilgreina þau þegar fjöldi gesta er tilgreindur.
• Gjaldmiðlaskráning (exchange rate) er aðeins ætluð til upplýsinga og tryggir ekki endanlegt gengi gjaldmiðils.
• Greiðsla skal fara fram við komu gesta.
• Ef spurningar vakna hvetjum við viðskiptavini að hafa samband við fyrirtækið í síma 483-5444 eða með tölvupósti á netfangið hotelhlid@hotelhlid.is










